Haustráðstefna Advania

Haustráðstefna Advania fer fram í Hörpu 10. september 2026. Á ráðstefnunni mætast gervigreind, netöryggi og nýsköpun í hnitmiðaðri dagskrá þar sem fjallað er um það sem skiptir mestu máli í dag.

Miðasala er í fullum gangi, tryggðu þér miða strax í dag!

Hvað færðu út úr deginum?

Fræðsla

Dýrmæt fræðsla og skýr sýn frá innlendum og erlendum sérfræðingum á heimsmælikvarða. Raunveruleg dæmi og reynslusögur sem hægt er að yfirfæra beint í eigið starf.

Innblástur

Fáðu innblástur til að taka næsta skref í stafrænni umbreytingu. Haustráðstefna Advania er ekki aðeins ráðstefna - hún er árlegur samkomustaður þeirra sem vilja vera skrefi á undan í tækni, rekstri og forystu.

Tengsl

Tækifæri til tengslamyndunar við lykilaðila í íslensku atvinnulífi í faglegu og lifandi umhverfi í Hörpu. Spennandi dagskrá, góð stemning og veitingar - því heildarupplifunin skiptir máli!

Ráðstefnudagur

• Fimmtudaginn 10. september 2026 í Hörpu.

• Lykilræður og kynningar allan daginn.

• Léttur hádegisverður og drykkir að viðburði loknum.

• Upptökur aðgengilegar að ráðstefnu lokinni

39.500kr. m/vsk.

Kaupa miða með korti

Ath. Ef þú vilt skrá miðakaupin í reikning vinsamlegast fylltu út formið hér á síðunni.

Ráðstefnufréttir

03.09.2026
Advania ALT (Advania AI Layer Technology) er ný lausn sem gerir fyrirtækjum og stofnunum kleift að nýta leiðandi gervigreindarlíkön á öruggan og ábyrgan hátt.
31.08.2026
Haustráðstefna Advania fer fram í 32. sinn í Hörpu fimmtudaginn 10. september 2026 þar sem gervigreind, netöryggi og nýsköpun mætast. Á dagskrá eru sautján erindi og tvær pallborðsumræður svo á svið stíga yfir 20 sérfræðingar en uppselt er á ráðstefnuna á hverju ári.
10.09.2025
Fulltrúar frá NVIDIA héldu áhugaverða kynningu á Haustráðstefnu Advania þar sem farið var yfir sögu og framtíð gervigreindar (AI) og GPU-tækni. Í kynningunni var farið yfir hvernig NVIDIA hefur þróast frá því að vera fyrirtæki í framleiðslu á skjákort fyrir tölvuleiki yfir í að vera leiðandi fyrirtæki í gervigreind.
Sjá fleiri fréttir

Haustráðstefna Advania 2025